Baráttan gegn sjókvíaeldi er hluti af baráttunni fyrir framtíð jarðarinnar. Laxeldi í opnum sjókvíum er ekki aðeins dýrkeypt fyrir umhverfið og lífríkið heldur veldur það miklum þjáningum fyrir milljónir eldislaxa. Þetta er miskunnarlaus og ómannúðleg aðferð við að framleiða matvæli.

Laxeldi í opnum sjókvíum skaðar umhverfið og ógnar tilveru íslenska villta laxastofnsins. Laxinn eignaðist sín óðul í ám landsins mörg þúsund árum áður en fólk nam hér land.

Öll mengun í sjókvíaeldi rennur óhindrað í sjóinn í gegnum möskva netapokanna. Saur fiska, fóðurleifar, skordýraeitur, lyf, örplast og þungmálmar flæða óhindrað í gífurlegu magni í gegnum möskvana. Kemísku efnin og örplastið eru banvæn fyrir lífríki hafsins.

Íslensku laxastofnarnir koma úr afmarkaðri þróunarlínu sem er einstök fyrir Norður Atlantshafslaxinn. Talið er að íslensku villtu laxarnir séu um 60.000 talsins. Í hverri á er sérstakur stofn sem hefur aðlagað sig umhverfi hennar á þúsundum ára.

Erfðablöndun við eldislax sem sleppur úr sjókvíum hefur skelfilegar afleiðingar fyrir villta laxastofna. Eldisgenin skerða verulega getu þeirra til að lifa af í náttúrunni. Stöðug slík erfðablöndun mun á endanum leiða til útrýmingu villta laxins.

Aegis berst fyrir umhverfisvernd og styður baráttuna gegn sjókvíaeldi.

Aegis á samfélagsmiðlum

@aegiswatch

Leiðir til að styrkja

PayPal

Styrkja

Millifærsla

Kt. 411123-0570

Rnr. 0133-15-005747

AEGIS ver þeim fjármunum sem safnast hverju sinni, til þeirra verkefna sem samræmast markmiðum stofnunarinnar. Þar má nefna sem dæmi stuðning við greiðslu lögfræðikostnaðar mótmælenda sjókvíaeldis, gerð vídjó- og kynningarefnis, fræðslu og upplýsingagjöf er tengist mótmælum við sjókvíaeldi.

Samstarfsaðilar

Björk og Rosalia hafa ákveðið að gefa AEGIS sjálfseignarstofnuninni allan rétt þeirra til tekna af laginu Oral til að berjast gegn opnu sjókvíaeldi á Íslandi. Plötufyrirtæki þeirra hafa samþykkt að gera slíkt hið sama. Allar tekjur munu ganga til greiðslu lögfræðikostnaðar mótmælenda, aðgerða til að stöðva uppbyggingu eldisstöðva sem skaða dýralíf, afskræma fiska, og skapa hættu á erfðablöndun eldislax við villta laxastofna og skaða þannig möguleika þeirra til að lifa af í náttúrunni. Tafarlausar aðgerðir skipta sköpum.

Myndefni

AEGIS

Kt. 411123-0570

Suðurlandsbraut 22

108, Reykjavík

aegisvaktin (@) gmail.com